Dómsmálaráðuneytisins, Landhelgisgæslunnar ,Varnarmálastofnunar og NATO standa að alþjóðlegri æfing sprengjusérfræðinga, sem nefnist Northern Challenge, hérlendis. Æfingin sem stendur yfir í tvær vikur verður haldin á gamla varnarliðssvæðinu við Keflavíkurflugvöll og í höfninni við Helguvík.
Samkvæmt upplýsingum frá LHG er ætlunin að reyna að skapa aðstæður sem eru eins raunverulegar og hægt er. Notaðar verði eftirlíkingar af hryðjuverkasprengjum sem fundist hafa um heim allan sl. ár.
Þetta er í áttunda skipti sem æfingin fer fram hér á landi og hefur aðsóknin aukist ár frá ári. Þær þjóðir sem tekið hafa þátt frá upphafi eru Bandaríkin, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Frakkland Holland, Noregur, Pólland, Svíþjóð, Úkraína og Þýskaland.
Í ár taka Noregur, Frakkland, Þýskaland, Holland,Bandaríkin og Bretland þátt í æfingunni en jafnframt sprengjusveit Landhelgisgæslunnar, alls um 80 manns. Auk þessa koma að æfingunni fulltrúar frá þyrludeild, köfunardeild og varðskipadeild LHG, Ríkislögreglustjóra, Slökkviliði Höfðaborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar.
Samkvæmt upplýsingum LHG nýtist æfingin til að halda sprengjusérfræðingum í góðri þjálfun og þeir verði betur í stakk búnir til að takast á við verkefni í heimalöndum sínum og á erlendri grundu.
Æfingin hefur áunnið sér hlutverk innan NATO Í svo kölluðu POW ( Programme Of Work Against Terrorism) sem notað er í baráttunni gegn hryðjuverkum og flokkast undir mannúðarstarf.
Ætlunin er að nota æfinguna til að þjálfa og prófa nýja starfmenn, þjálfa sjúkraflutningamenn í liðunum, prófa ný tæki og búnað og í sumum tilfellum nýtist æfingin sem lokaundirbúningur áður en teymin eru send erlendis til sprengjueyðingar, til landa eins og t.d Afganistan, Írak og Líbanon.
Frá hverri þjóð koma tveir reynslumiklir sprengjusérfræðingar sem skiptast á að fylgjast með liðunum við misjöfn verkefni. Að þeim loknum fá liðin einkunn og leiðbeiningar um hvað betur mætti fara hverju sinni.
Æfingin er haldin með styrk frá NATO en sprengjusveit LHG annast að öllu leyti undirbúning og skipulag æfingarinnar en fær til þess aðstoð frá öðrum þjóðum.