Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun skipan sérstakrar ráðherranefndar um efnahagsmál. Í henni eru forsætisráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra. Aðrir ráðherrar sitja fundi nefndarinnar í samræmi við umfjöllunarefni.
Gert er ráð fyrir að ráðherranefndin fjalli meðal annars reglulega um atvinnumál og stöðu heimilanna.
Fram kemur á heimasíðu forsætisráðuneytisins, að ráðherranefndinni sé ætlað að samræma stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og hafa eftirlit með framkvæmd efnahagsstefnunnar á einstökum sviðum. Meðal annarra verkefna sé samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, framtíðarskipulag peningamála og samræming í fjármálum hins opinbera til lengri og skemmri tíma. Einnig muni hún verða stefnumótandi og hafa forystu um samskipti við aðila vinnumarkaðarins, uppbyggingu fjármálakerfisins og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi með tilliti til efnahagsmála.