Bandaríski tölvurisinn Microsoft hefur keypt íslensku hugbúnaðarlausnina LS Retail AX. Verðið er ekki gefið upp en að sögn Gunnars Björns Gunnarssonar, framkvæmdastjóra LS Retail, eru þetta ein verðmætustu viðskipti af þessu tagi sem hafa verið gerð hérlendis. „Þetta eru svimandi háar fjárhæðir,“ segir hann.
„Íslenskt hugvit, þrautseigja og 20 ára þrotlaus vinna er að skila því til Íslands að stærsta hugbúnaðarfyrirtæki í heimi er að kaupa okkar hugbúnaðarlausn,“ segir Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri LS Retail. Hann segir að með þessu sé LS Retail að selja um það bil 10% af rekstri fyrirtækisins. Hér á landi nota verslanir á borð við Hagkaup og Bónus hugbúnaðarlausn fyrirtækisins, sem er stærst á sínu sviði hérlendis.
Hann segir að þetta séu mjög góðar fréttir fyrir Ísland og íslenskt hugvit. „Íslensk fyrirtæki eru að gera góða hluti,“ segir hann.
„Við höfum ákveðið að fara ekki út í tölur. En það sem segir mikið um stærðina er að Microsoft notaði Yahoo-hópinn, sem átti að kaupa Yahoo, til þess að kaupa LS Retail AX lausnina okkar. Þetta voru um 200 manns sem komu að þessu máli, í sex mánuði stanslaust,“ segir Gunnar Björn. Aðspurður segir hann samkomulagið í höfn og búið sé að greiða fyrir hugbúnaðarlausnina.
Hann bendir á að í gegnum Microsoft sé hugbúnaðarlausnin sett upp í um 140 löndum, en mörg stórfyrirtæki á borð við IKEA og Adidas nota hugbúnaðinn. LS Retail AX hugbúnaðarlausnin er byggð ofan á Microsoft Dynamics AX viðskiptalausninni.