Sveitarstjóri Norðurþings segir að fundur hans og iðnaðarráðherra í kvöld hafi verið afar jákvæður en fundurinn var haldinn vegna þess að viljayfirlýsing ríkisins, Alcoa og Norðurþings um að kanna möguleika á byggingu álvers á Bakka rennur út 1. október.
Bergur Elías Ágústsson, svetirstjóri, og Gunnlaugur Stefánsson, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, hittu Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra, í kvöld. Bergur Elías sagði við Morgunblaðið eftir fundinn, að hann væri viss um að farsæl lausn myndi finnast á málinu.
Meirihlutu sveitarstjórnar Norðurþings hefur ályktað, að vinna eigi að framlengingu viljayfirlýsingarinnar. Í því felist að rannsóknarboranir á Þeistareykjum verði kláraðar, orkumagn og afhendingartími staðfestur og ákvörðun um byggingu stóriðju tekin.
Bergur Elías sagði eftir fundinn með ráðherra í kvöld að unnið verði áfram að málinu á næstu dögum og að Katrín hefði verið mjög jákvæð. „Við eigum náttúrulega sameiginleg markmið að nýta þessa orku þarna í þágu Norður- og Norðausturlands og það verður gert."