Sigurður Már Jónsson hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins en Haraldur Johannessen, sem gegndi starfinu, hefur verið ráðinn annar tveggja ritstjóra Morgunblaðsins.
Þetta kemur fram á vef blaðsins. Sigurður Már hefur starfað á Viðskiptablaðinu frá árinu 1995, síðustu ár sem aðstoðarritstjóri blaðsins.
Pétur Árni Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Mylluseturs, útgáfufélags Viðskiptablaðsins, Fiskifrétta, Hesta og hestamanna, Holu í höggi og tengdra miðla.