Gunnar Bragi Sveinsson, alþingismaður, hefur sent beiðni á Benedikt Jónsson ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, um að spurningalisti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins ásamt svörum íslenska ríkisins, verði þýddur á íslensku og sendur alþingismönnum.
Óskar hann eftir því að þetta verði gert jafnóðum og spurningum hefur verið svarað. Þá óskar hann eftir því að fá svar við þessari beiðni sem fyrst.