Nýir ritstjórar Morgunblaðsins tóku til starfa í morgun og hófu daginn á að heilsa upp á þá starfsmenn sem mættir voru til vinnu í morgun.
Þeir Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen heilsuðu upp á starfsfólk og fengu þeir leiðsögn Óskars Magnússonar, útgefanda blaðsins um ritstjórnina.
Af því tilefni veittu nýju ritstjórarnir mbl.is stutt viðtal á skrifstofu ritstjóra.