Iceland Express ætlar að hefja flug til Lúxemborgar næsta sumar. Flogið verður tvisvar í viku frá og með 1. júní, á þriðjudögum og fimmtudögum. Þar með fjölgar áfangastöðum félagsins í 22 og hafa aldrei verið fleiri. Nýverið hefur félagið tilkynnt um áætlunarflug til Mílanó á Ítalíu og Birmingham í Bretlandi.