Ökumenn hafa lent í vandræðum á Öxnadalsheiði vegna hálku. Vegagerðin mun ekki aðhafast vegna þessa. Björgunarsveit á vegum Landsbjargar er nú á leiðinni til að aðstoða ökumenn, samkvæmt upplýsingum frá fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra.
Þeir sem eru ekki á bílum búnum til vetraraksturs er bent á að leggja ekki á heiðina. Lögreglan á Akureyri sagði að Vegagerðin hafi verið á heiðinni í dag að sanda veginn. Lögreglan sagði að um leið og Vegagerðin hætti störfum sæki í sama farið. Á heiðinni hafi snjóað og því myndist fljótt fljúgandi hálka.