Stjórn Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði skorar á ráðherra í ríkisstjórn Íslands, að sjá til þess að allar upplýsingar og öll gögn er varða umsókn Íslands að Evrópusambandinu verði birt opinberlega á íslensku, þjóðtungu landsins.
Þannig verði tryggt að allir hafi möguleika á að kynna sér þau gögn er umsóknina varða, óháð tungumálakunnáttu, segir jafnframt í áskoruninni.