Þrjú innbrot voru framin í nótt á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Um var að ræða fyrirtæki við Suðurlandsbraut, Bíldshöfða og Flugvallaveg. Í öllum þremur tilvikum gerðu starfsmenn öryggisfyrirtækis lögreglu viðvart.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er verið að rannsaka málið og því enn ekki ljóst hverju var stolið í þessum innbrotum en eigendur þessara fyrirtækja munu fara yfir það í dag hverju var stolið nákvæmlega.
Engin hefur verið handtekinn vegna málsins. Ekki fengust upplýsingar um það hvort í fyrirtækjunum þremur hefðu verið öryggiseftirlitsmyndavélar.
Að öðru leyti var mjög rólegt á höfuðborgarsvæðinu í nótt sem leið.