Þjófar hætta við innbrot

Lögreglubifreið.
Lögreglubifreið. mbl.is/Július

Þjófar hurfu af vettvangi á Langholtsveginum í nótt eftir að þeim mistókst að brjótast inn í söluturn. Á sama tíma hurfu þjófar frá fyrirtæki í Holtasmára í Kópavogi eftir að hafa spennt upp glugga. Engu virðist hafa verið stolið, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Í nótt var einnig brotist inn í fyrirtæki á Viðarhöfða, auk þess sem maður undir áhrifum fíkniefna var tekinn höndum undir stýri á Smiðjuveginum í Kópaveginum.Var hann fluttur í fangageymslur.

Telst þetta afar róleg nótt hjá lögreglunni sem haft hefur í nógu að snúast undanfarna mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert