Samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur og Íþróttabandalag Reykjavíkur munu í vetur sameinast um aukið samstarf þessara aðila í sérstökum forvarnarverkefnum tengdum börnum og ungmennum. Samningur þar að lútandi verður undirritaður í dag.
Sérstök áhersla verður lögð á að vinna með íþróttafélögum, foreldrafélögum og stofnunum Reykjavíkurborgar, þar með talið skólum, frístundamiðstöðvum og þjónustumiðstöðvum, til að koma í veg fyrir brottfall unglinga úr íþróttum, að því er fram kemur í frétt frá borginni.
Skipaður verði sérstakur starfshópur þessara aðila til að undirbúa og vinna að verkefni þessu.
Með umræddu verkefni er m.a. stefnt að því að auka upplýsingmiðlun til að stuðla að því að sem flestir unglingar eigi þess kost að taka þátt í skipulögðu æskulýðsstarfi. Sérstök áhersla verður lögð á að sinna þeim unglingum, sem hætta þátttöku í íþróttum og benda þeim á aðra uppbyggilega kosti til að verja frítíma sínum.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að börn og unglingar, sem taka þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi, eru ólíklegri en aðrir til að leiðast út í fíkniefnaneyslu og aðra óæskilega hegðun. Foreldrar, sem þekkja aðra foreldra í hverfinu og vini barna sinna ásamt því að vita hvað börnin aðhafast í frítímanum, minnka um leið hættuna á því að þau ánetjist fíkniefnum.
„Þátttaka foreldra eflir forvarnaáhrif skóla- og íþróttastarfs til mikilla muna. Líklegt er að enn sé hægt að efla forvarnir með því að stuðla að auknu samstarfi allra þeirra, sem taka þátt í slíku unglingastarfi, t.d. foreldra, kennara og þjálfara. Með útvíkkun á slíku samstarfi verður hægt að þétta enn frekar það net forvarna sem þegar er til staðar og hefur skilað miklum árangri,“ segir í áðurnefndri tilkynningu.