Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, mun ganga á fund Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í hádeginu. Ekki hafa fengist upplýsingar um fundarefnið en talið er að það tengist Icesave-málinu. Mun Ögmundur ræða við fréttamenn að loknum fundinum.