Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs lýsti á fundi sínum í dag yfir vonbrigðum með þá ákvörðun umhverfisráðherra að fella úr gildi úrskurð Skipulagsstofnunar um Suðvesturlínur.
„Brýn þörf er á að styrkja orkuflutningskerfið fyrir almenna notkun og frekari uppbyggingu á Suðurnesjum,“ segir í samþykkt bæjarráðs Garðs. „Sameiginlegt mat á tengdum framkvæmdum er ekki framkvæmanlegt því ekki er ljóst hvaða framkvæmdir tengjast beint orkuöflun og orkuflutningum á svæðinu.
Bæjarráð telur að ekki megi setja stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar, verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins í hættu með því að skapa óvissu um stöðu þeirra mikilvægu verkefna sem unnið er að til að blása lífi í atvinnulífið í landinu og sérstaklega hér á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysi er hvað mest á landinu.“