Vilja ekki lána Íslandi stórfé

Norskar krónur.
Norskar krónur.

Talsmenn norska Verkamannaflokksins segja ekki koma til greina að lána Íslendingum allt að 2000 milljarða króna eins og Per Olaf Lundteigen, þingmaður Miðflokksins norska hefur lagt til.  

Norski fréttavefurinn ABC hefur eftir Marianne Aasen, þingmanni Verkamannaflokksins, að Íslendingar geti ekki stytt sér leið út úr fjármálakreppunni. Norskir skattgreiðendur eigi ekki að borga fyrir þá tilraun, sem hægrisinnaðir stjórnmálamenn á Íslandi hafi staðið fyrir.

Frétt ABC

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert