Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína á Alþingi á mánudagskvöld og verður að venju sjónvarpað og útvarpað frá umræðunum í Ríkisútvarpinu.
Umræðurnar hefjast klukkan 19:50. Ekki hefur verið tilkynnt hverjir taka þátt í þeim af hálfu þingflokkanna.