Valt í hálku

Suðurlandsvegur við Litlu kaffistofuna.
Suðurlandsvegur við Litlu kaffistofuna.

Bíll valt á Suðurlandsvegi í Hveradalabrekku í gærkvöldi. Engan sakaði, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Óhappið er rakið til þess, að snjóað hafði á Hellisheiði og var vegurinn því háll.

Lögreglan segir, að vetrarfærð sé á heiðinni eins og er en þar var éljagangur í morgun og mikil hálka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert