Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann í nótt fyrir líkamsárás í Tryggvagötu, en maðurinn hafði slegið annan mann í andlitið með þeim afleiðingum að tönn brotnaði. Maðurinn var færður á lögreglustöð við leit á honum fundust ætluð fíkniefni.
Alls voru sex líkamsárásir tilkynntar til lögreglu í nótt. Engin þeirra er sögð vera mjög alvarleg.
Þá voru tveir teknir ölvaðir undir stýri.