Hafís í Önundarfirði

Tveir jakar hafa sést í Önundarfirði. Myndin er tekin í …
Tveir jakar hafa sést í Önundarfirði. Myndin er tekin í dag. mynd/Páll Önundarson

Íbúar á Flateyri við Önundarfjörð ráku upp stór augu í dag þegar þeir sáu hafís í firðinum. „Það eru komnir tveir jakar, og þeir eru komnir inn á fjörðinn til móts við Ingjaldssand,“ segir Páll Önundarson, sem býr á Flateyri.

Páll segist hafa orðið hissa að sjá jakana, enda október rétt nýhafinn. „Okkur finnst þetta heldur snemmt,“ segir hann í samtali við mbl.is. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert