Tíðinda að vænta af Rússaláni

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Ómar

Fundi Steingríms J. Sigfússonar með Dmitry Pankin, aðstoðarfjármálaráðherra Rússlands, lauk fyrir skömmu. Á fundinum var rætt mögulegt lán Rússa til Íslendinga.

„Þetta var góður fundur í vinsamlegu andrúmslofti,“ segir Steingrímur. Hann segist ekkert geta gefið út um niðurstöðu fundarins að svo stöddu, en reiknar með að Rússar sendi frá sér tilkynningu á morgunm þar sem þeir skýri sína afstöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert