Olíuskip sigldi gegnum hafíssvæði

Hafís á Önundarfirði um helgina.
Hafís á Önundarfirði um helgina.

Nokkrar tilkynningar um hafís hafa borist stjórnstöð Landhelgisgæslunnar síðastliðna sólarhringa. Nokkrir ísjakar hafa sést við Vestfirði, nánar tiltekið frá norðaustanverðu Horni allt að minni Önundarfjarðar.

Stjórnstöð hafði í morgun samband við togara á svæðinu undan Vestfjörðum og áréttaði að skipin létu stjórnstöð strax vita ef vart yrði um hafís á svæðinu þannig að upplýsingum yrði komið til skipa sem leið eiga um svæðið. 

Þeir ísjakar sem skip hafa séð undanfarna daga undan Vestfjörðum hafa ekki komið fram á gervitungamyndum en geta engu að síður verið hættulegir skipum því einungis 1/10 af þeim er ofansjávar.

Landhelgisgæslan segir, að það hafi vakið nokkrar áhyggjur að  fregnir bárust af siglingu olíuskipa um íslensku efnahagslögsöguna en annað skipanna valdi að sigla vestur fyrir land í afleitu veðri, þar sem hætta var á hafís. Bæði skipin voru með óvenju stóran farm af hráolíu eða um 106.000 tonn hvort. Voru þau á siglingu í gegn um hafsvæðið frá Rússlandi til Bandaríkjanna.

Hvorugt skipið taldi sig ekki þurfa að tilkynna siglingu til vaktstöðvarinnar en eftir að haft var samband við skipin sendu þau nauðsynlegar upplýsingar.

Landhelgisgæslan segir, að vegna misbrests á tilkynningum til stjórnstöðvar frá þessum olíuskipum verði haft samband við siglingaumferðarmiðstöðina í Vardö og áréttað að skip sem þessi sendi tilkynningar tímanlega um komur sínar inn í íslenska  lögsögu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert