Umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 26% milli ára frá fyrra ári um 26% fyrstu átta mánuði ársins, samkvæmt mánaðarskýrslu umferðardeildar lögreglunnar. Sambærilegar tölur frá tryggingafélögunum sýna 19% fækkun.
Skráðum umferðaróhöppum fækkar á sama tíma um 52% milli ára. Segir lögreglan, að þá fækkun megi að hluta rekja til samkomulags tryggingafélaga og Neyðarlínu í endaðan júní 2008 um aðstoð á vettvangi til handa þeim er lenda í minniháttar umferðaróhöppum. Lögreglan hætti þá að mestu að sinna slíkum óhöppum og skrá. Tölur tryggingafélaga sýna á sama tíma 24% fækkun.
Umferðaróhöppum þar sem ölvun kemur við sögu fækkar milli ára úr 128 árið 2008 í 94. Óhöppum tengd fíkniefnaneyslu fjölgar hinsvegar úr 23 í 33 á sama tímabili og kærum vegna slíkra brota hefur jafnframt fjölgað umtalsvert.
Mánaðarskýrsla umferðardeildar lögreglunnar