Karl á þrítugsaldri var handtekinn í miðborginni síðdegis í gær en viðkomandi neitaði að segja til nafns og reyndi að villa á sér heimildir.
Málavextir voru þeir að lögreglumenn höfðu afskipti af bifreið sem var lagt í stæði sem er merkt fyrir fatlaða. Ökumaður bílsins kom þá út úr nærliggjandi húsi og vildi fá skýringar á afskiptum lögreglu, að því er segir á lögregluvefnum.
Maðurinn var beðinn um að framvísa ökuskírteini sem og hann gerði en um var að ræða ökuskírteini annars manns. Var maðurinn þá beðinn um að afhenda sitt eigið og segja rétt til nafns en á það vildi hann alls ekki fallast. Var maðurinn þá handtekinn en við frekari eftirgrennslan kom í ljós að hann er próflaus og viðurkenndi hann bæði að hafa ekið bílnum og lagt honum ólöglega.