Aðalstjórn
Öryrkjabandalags Íslands mótmælir harðlega að ríkisstjórnin, sem kennir sig við
félagshyggju og jöfnuð, skuli áforma að halda áfram að skerða kjör öryrkja
umfram aðra þegna landsins. Þetta kemur fram í ályktun frá ÖBÍ.
„Álögur á öryrkja jukust í „góðærinu“ vegna heilbrigðismála, t.d. jókst lyfja- og lækniskostnaður. Auk þess fylgdi lífeyrir ekki verðþróun að fullu. Um síðustu áramót voru lög frá 1997, sem áttu að tryggja að lífeyrir hækkaði sem svaraði kjarasamningum eða framfærsluvísitölu, tekin úr sambandi. Aðeins lítill hluti lífeyrisþega fékk þá hækkun sem lögin sögðu til um.
Þann 1. júlí sl. voru breytingar gerðar á greiðslum almannatrygginga þegar lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum tóku gildi. Tekjutengingar jukust þannig að bætur almannatrygginga skertust meira og fyrr en áður. Sú breyting hafði þau áhrif að margt fólk missti ákveðin réttindi sem fylgdu bótunum s.s. niðurgreiðslu á sjúkra-, iðju- og talþjálfun og tannlæknakostnaði.
Auk þess hafa komið fram eða eru í bígerð beinar hækkanir, eða aukin þátttaka í lyfja-, læknis- og þjálfunarkostnaði.
Til að standa vörð um það sem eftir er af íslensku velferðarkerfi krefst Öryrkjabandalag Íslands að Alþingi endurskoði fjárlög 2010 með það að markmiði að verja kjör lífeyrisþega."