Jepplingur valt við veðurstöðina á Vopnafjarðarheiðinni rúmlega fjögur í dag. Einn var í bílnum en sakaði ekki. Björgunarsveitin Vopni fór á staðinn til aðstoðar og flutti ökumanninn niður af heiðinni.
Veður var skaplegt þegar slysið varð en er versnandi og ekkert ferðaveður á öræfum en um 25m eru á Biskupshálsi og mikill skafrenningur.