Vasapeningar aldraðra lækka ekki

Félags- og tryggingamálaráðuneytið áréttar, vegna misskilnings sem fram hafi komið í fjölmiðlum, að upphæð vasapeninga til aldraðra á stofnunum verður ekki lækkuð. Óskertir vasapeningar eru 41.895 kr. á mánuði.

„Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs kemur fram að útgjöld vegna vasapeninga til aldraðra á stofnunum verði 352 milljónir króna. Þetta er lægri upphæð en í fjárlögum síðasta árs og virðist það hafa leitt til þess misskilnings að ákveðið hafi verið að lækka fjárhæð vasapeninga til einstaklinga,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

„Þetta er ekki rétt heldur stafar lækkun heildarútgjalda af því að með vaxandi lífeyrisréttindum fækkar stöðugt í hópi aldraðra sem eru tekjulausir og fá þess vegna greidda vasapeninga. Á fjárlögum þessa árs voru heildarútgjöld vegna vasapeninga ofmetin og hefur það verið leiðrétt í fjárlögum ársins 2010.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert