Ungmenni til ráðgjafar

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sagði í lokaávarpi sínu á Umhverfisþingi í dag að hún hefði ákveðið að stofna umhverfisráð ungmenna sem ætti að vera ráðherra til ráðgjafar. Fulltrúar ungs fólks á Umhverfisþingi lögðu fram tillögu þess efnis á þinginu.

Á síðari degi Umhverfisþingsins, sem var í dag, voru flutt stutt erindi þar sem reynt var að svara spurningunni; hvernig náum við takmarkinu um sjálfbært Ísland? Auk þess tók þinggestir þátt í umræðum á samráðsfundi í heimskaffistíl þar sem fjallað var um sömu spurningu, samkvæmt tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert