Þrátt fyrir að fjölmennt hefði verið í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og nótt fór allt þokkalega vel fram að sögn varðstjóra lögreglunnar. Nokkur minniháttar slagsmál komu upp sem lögreglu gekk vel að greiða úr. Ekki hafði verið tilkynnt um nein innbrot efir nóttina nú í morgunsárið.