Fjórir varaþingmenn á Alþingi

Fjórir varamenn tóku í dag sæti á Alþingi. Enginn þingfundur var hins vegar í dag vegna þingflokksfunda og því taka varamennirnir ekki  formlega við fyrr en á morgun.

Þessir varamenn eru Anna Margrét Guðjónsdóttir fyrir Oddnýju G. Harðardóttur, Guðrún Erlingsdóttir fyrir Róbert Marshall, Eyrún Sigþórsdóttir fyrir Einar K. Guðfinnsson og Davíð Stefánsson fyrir Árna Þór Sigurðsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert