38 ára gamall Íslendingur liggur alvarlega slasaður á Háskólasjúkrahúsinu í Stafangri í Noregi eftir umferðarslys rétt fyrir klukkan 9 í morgun. Samkvæmt fréttavef Stavanger Aftenblad var maðurinn á hjóli í miðborg Stafangurs á mikill ferð þegar hann lenti í árekstri við bíl sem ekki sinnti stöðvunarskyldu.
Lögreglan í Stafangri hefur staðfest við Morgunblaðið að maðurinn sem slasaðist er íslenskur en búsettur í Stafangri. Hann hlaut alvarlega höfuðáverka og var fluttur á bráðamóttöku en nánari upplýsingar fást ekki um líðan hans. Málið er enn í rannsókn hjá lögreglunni í Stafangri.