Tólf japönsk túnfiskveiðiskip sáust í gær að veiðum rétt utan íslensku efnahagslögsögunnar. Ekki eru leyfðar túnfiskveiðar innan íslensku lögsögunnar en ákveðið var að veiðiheimildir Íslands fyrir árið 2009 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks yrðu geymdar og fluttar óskertar til ársins 2011.
Til skipanna sást í eftirlits- og gæsluflugi Landhelgisgæslunnar á TF-Sif, sem farið var í gærkvöldi og nótt. Skipin voru á svæði frá 17. til 25 breiddargráðu.