Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og þingmaður, er þess fullviss að verði lögð fram formleg beiðni af hálfu Íslendinga um lán frá Norðmönnum þá verði beiðnin samþykkt.
Sigmundur Davíð og Höskuldur Þráinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hafa gagnrýnt Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, harðlega fyrir bréf sem hún skrifaði Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, og gert var opinbert um helgina.