Fimmtíu nemendur hafa tilkynnt veikindi í grunnskólanum á Fáskrúðsfirði en talið er að svínaflensa hafi komið upp í skólanum. Skólastjórinn liggur einnig veikur heima en að sögn Eyglóar Aðalsteinsdóttur aðstoðarskólameistara stendur til að taka sýni hjá veikum nemendum til að ganga úr skugga um eðli veikindanna.
101 nemandi er í grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og því aðeins helmingur nemendanna í skólanum. „Það er ekki hægt að segja til um hvort þetta er svínaflensa eða annað en þetta virðist vera bráðsmitandi,“ segir Eygló.
30% nemenda veikir í Oddeyrarskóla
„Toppurinn var í gær en þetta byrjaði í síðustu viku,“ segir Rannveig Sigurðardóttir, skólastjóri Oddeyrarskóla á Akureyri. Um 30% nemenda Oddeyrarskóla á Akureyri hafa tilkynnt um veikindi eða 60 nemendur og er það óvenjumikill fjöldi. Ekki hefur verið staðfest hvort um svínaflensu er að ræða að sögn Rannveigar en í mörgum tilfellum er um háan hita, hósta og flensulík einkenni að ræða.
Þrettán nemendur tilkynntu um veikindi í grunnskólanum á Breiðdalsvík í gær en ekki hefur bæst við þann fjölda að sögn starfsmanns skólans.
Hægt er að fá upplýsingar um einkenni og viðbrögð vegna svínaflensu á heimasíðu Landlæknisembættisins influensa.is.