Afli og verðmæti aukast

Heildarafli íslenskra skipa nam 77.392 tonnum í september.
Heildarafli íslenskra skipa nam 77.392 tonnum í september. Kristján Kristjánsson

Heildarafli íslenskra skipa nam 77.392 tonnum í september, sem er um 14% meira en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 68.052 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn 18,5% meiri í september í ár en í fyrra.

Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 6,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.

Þetta kemur fram á vef LÍU sem vitnar til Hagstofunnar. Þannig jókst aflinn um rúm 4.000 tonn frá september 2008 og nam tæpum 36.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 14.000 tonn, sem er um 4.000 tonnum meira en árið áður.

Ýsuaflinn nam rúmum 6.000 tonnum sem er um 1.600 tonnum minni afli en í september 2008. Ufsaaflinn stóð nokkurn veginn í stað á milli ára.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 38.000 tonnum sem er um 5.000 tonna aukning frá septembermánuði í fyrra.

Í september var flatfiskaflinn 2.665 tonn í september og jókst um 747 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 907 tonnum en var um 1.500 tonna í september í fyrra

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert