Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók rúðubrjót í Hafnarfirði í gærmorgun. Maðurinn hafði ferðast með leigubíl en átti síðan ekki fyrir reikningnum þegar til þess kom. Af ókunnum ástæðum braut maðurinn rúðu í leigubílnum.
Hætt er við að reikningurinn verði mun hærri þegar ný rúða og ísetning hafa bæst við hann. Maðurinn var verulega ölvaður segir lögregla.
Þá voru nokkur önnur rúðubrot tilkynnt til lögreglunnar en rúður voru brotnar á minnst fjórum stöðum í Reykjavík í gær og nótt. Þá var kveikt í strætisvagnaskýli í Hafnarfirði í gær og skemmdist það nokkuð.