Ýmislegt óvenjulegt hefur borið við á Bassastöðum í Steingrímsfirði í haust ef marka má frásögn, sem birt er á vefnum Ströndum.is. Þar lýsir Guðbrandur Sverrisson, bóndi, því að ær og lamb, sem talin voru af í fyrra, komu af fjalli og gamalær tók upp á því að bera í miðri sláturstíðinni.
Segir Guðbrandur m.a. að Mógolsa gamla, sem átti að fá hægan dauðdaga í haust enda fædd 1995, hafi borið 12. október. „Hefur hún þegar hún slapp frá oki húsbændanna í vor náð sér í ungan og sprækan elskhuga og átt með honum unaðslega stund í bjartri vornóttinni sem kveikti með henni nýtt líf er birtist nú í fyllingu tímans," segir í frásögn Guðbrandar.
Hann segir einnig að það gerist æ oftar að ær heimtist ekki fyrr en langt er liðið á vetur og hafi ýmsar tilgátur komið fram um ástæður.
„Sem dæmi um það sem upp kemur þegar orsakir eru krufðar til mergjar er að smalarnir séu alltof feitir, fjórhjólin átti sig ekki á hvar skjáturnar leynist, óþekkar fjallafálur hlaupist á brott meðan smalinn leggur sig eftir matinn og ýmislegt fleira getur hent í öræfakyrrðinni. Það nýjasta er að ærnar séu farnar að átta sig á að ekki sé vinsælt að koma með lítil og óásjáleg lömb af fjalli. Þau fari bara í kæfu eða eitthvað ámóta lélegt, á meðan stóru læramiklu lömbin með mikla bakvöðvann fara beint á steikarpönnu höfðingjanna og verða að veislumat, eins og öll lítil lömb dreymir um verða þegar þau verða stór."