Munu beita sér gegn viðhaldsstöð fyrir orrustuflugvélar

Frá varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Frá varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Samtök hernaðarandstæðinga lýsa í dag yfir miklum vonbrigðum sínum vegna frétta af hugmyndum um stofnun hergagnageymslu og æfingaaðstöðu fyrir NATO-heri á Keflavíkurflugvelli.

„Þrjú ár eru nú liðin frá því jákvæða skrefi sem lokun
herstöðvar Bandaríkjamanna hér á landi var,“ segir í ályktun samtakanna. „Íslendingar eiga sem þjóð að leggja sitt að mörkum til að stuðla að afvopnun og vinna að friðsamlegri
heimi. Það gerum við ekki með því þjónusta hernaðarmaskínur
grannríkjanna.“

Samtök herstöðvarandstæðinga telja að allt tal um að orrustuþotur og herþyrlur þær sem hér kunna að vera geymdar muni ekki bera vopn sé aumt yfirklór. „Það er enginn eðlismunur á því að þjónusta herþotur og þjálfa herflugmenn annars vegar, en varpa sprengjum í
fjarlægum löndum með þessum sömu vélum hins vegar. Í fréttum af málinu hefur talsvert verið fjallað um hversu mörg störf kynnu að skapast vegna starfseminnar, en minna hefur farið fyrir umræðu um hversu margir muni láta lífið vegna hennar.“

Samtök vekja athygli á því að ríkisstjórnin segir í stefnuyfirlýsingu að hún ætli sér að gera Ísland að vettvangi fyrir friðarumræðu og leggja áherslu á baráttu fyrir friði og afvopnum í heiminum. „Vandséð er að hergagnageymslur og þjálfunarbúðir hermanna samrýmast þessari stefnu.

„Hugmyndir af þessu tagi eru ekki samboðnar virðingu íslensku þjóðarinnar og ættu með réttu að ganga gegn siðferðiskennd landsmanna allra. Ljóst er að enginn friður mun ríkja um þessa fyrirhuguðu starfsemi, verði hún að veruleika og Samtök hernaðarandstæðinga munu beita sér af krafti gegn henni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka