Hópur sem kallar sig Flóttamannahjálpin boðar til mótmælafundar á Lækjartorgi í hádeginu á morgun undir yfirskriftinni: „Niður með rasisma, niður með Útlendingastofnun!“
Í tölvupósti frá hópnum kemur fram að hann sé ósáttur með að þremur flóttamönnum frá Írak og Afganistan hafi verið vísað úr landi og sendir til Grikklands.