Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að einbýlishúsi við Hlíðartún í Mosfellsbæ um kl. 19.30 í gærkvöldi. Þar fór eldvarnakerfi í gang. Töluvert mikill reykur var í húsinu þegar slökkviliðið kom á staðinn. Tveir reykkafarar voru sendir inn og fundu strax brauðgerðarvél sem brunnið hafið yfir.
Brauðgerðarvélin var fjarlægð og húsið reyklosað.