Lýst eftir konu í tengslum við mansal

Ieva Grisiúte
Ieva Grisiúte

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir litháískri konu sem grunur leikur á að sé fórnarlamb mansals. Konan ferðaðist hingað til lands undir nafninu Ieva Grisiúte en talið er að ferðaskilríkin sem hún framvísaði séu stolin.

Konan kom hingað til lands með flugi síðastliðið föstudagskvöld og var flutt rænulítil á sjúkrahús eftir að hafa látið ófriðlega í flugvélinni síðasta hluta leiðarinnar. Hún dvaldi á sjúkrahúsi aðfararnótt laugardagsins en síðan hjá lögreglunni á Suðurnesjum að eigin ósk. Hún sagðist ekki eiga í nein hús að venda og engan þekkja hér á landi. Hún gat litlar skýringar gefið á ferð sinni hingað til lands.

Lögreglan óttast að konan sé í hættu

Lögreglan varð vör við þrjá menn sem biðu eftir konunni og reyndu að ná sambandi við hana. Lögregla þekkti til mannanna sem allir eru Litháar og þekktir brotamenn. Voru þeir handteknir í gær og hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald allt til föstudags.

Konan sást síðast um kl. 23:30 á mánudagskvöld við verustað sinn í Reykjanesbæ. Hún er með axlasítt svart hár og talin hafa verið klædd í svarta hálfsíða hettuúlpu/kápu, svartar gallabuxur, ljósgula peysu og brúna skó þegar hún hvarf.

Talið er að konunni kunni að vera hætta búin reynist grunur lögreglu um mansal réttur og því mjög brýnt að haft verði upp á henni. Jafnframt lýsir lögreglan á Suðurnesjum eftir 35 ára gömlum Litháa, Vitalijus Gejer, sem talinn er tengjast málinu en hefur ekki fundist þrátt fyrir mikla eftirgrennslan lögreglu.

Lögreglan á Suðurnesjum biður alla þá sem einhverjar upplýsingar geta gefið um konuna (Ievu Grisiúte) og Vitalijus Gejer að hafa samband við Lögregluna á Suðurnesjum, s. 420 1700, eða næstu lögreglustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert