Pósthúsinu á Hellissandi verður lokað í dag, föstudaginn 16. október. Er það gert í hagræðingarskyni, að því er fram kemur í Skessuhorni. Íbúar á Hellissandi, í Rifi og annarsstaðar á utanverðu Snæfellsnesi þurfa hér eftir að sækja póstþjónustu til Ólafsvíkur en landpóstur mun fara um Hellissand. Einn hefur starfað undanfarið hjá Íslandspósti á Hellissandi í 40% starfshlutfalli sem nú flyst til starfa í Ólafsvík.