Búið er að slökkva eld sem kviknaði í strætisvagni við Hvannavelli í Hafnarfirði um fjögurleytið. Slökkviliðsmenn eru enn á vettvangi en unnið er að því að kæla vagninn, sem er mikið skemmdur ef ekki ónýtur.
Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sakaði engan. Einn farþegi var í vagninum ásamt bílstjóra.
Eldur var í vélarrými strætisvagnsins. Eldsupptök eru ókunn.