Rannsókn hefur leitt í ljós að ferðaskilríki, sem litháensk kona framvísaði við komu til Íslands sl. föstudag, eru fölsuð og í dag gaf konan upp nafn og persónupplýsingar sem þarf að fá staðfestar frá yfirvöldum í heimalandi hennar. Konan er nú í umsjá lögreglu.
Um er að ræða konu, sem lögreglu grunar að hafi verið flutt til landsins sem fórnarlamb mansals. Þrír landar hennar voru handteknir á þriðjudag, grunaðir um að tengjast ætluðu mansali. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til dagsins í dag og var gæsluvarðhaldið síðan framlengt í dag til miðvikudags.