AFL stefnir Landsvaka

Nærmynd

AFL Starfsgreinafélag hyggst stefna sjóðsstjórnum Landsvaka, er önnuðust upplýsingagjöf til félagsins og fóru með fjármuni þess, til greiðslu bóta vegna þeirra fjármuna er félagið tapaði við uppgjör sjóðsins.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri félagsins, sendi frá sér nú undir kvöld, en málshöfðunin var samþykkt á stjórnarfundi AFLs Starfsgreinafélags fyrr í kvöld.

Í samþykkt sem stjórnin gerði kemur fram að grundvöllur málshöfðunar sé að félagið telji að umræddir sjóðsstjórar hafi blekkt félagið til áframhaldandi viðskipta þegar ljóst hafi verið að eignasafn sjóðsins hafi ekki verið í samræmi við lýsingar og sjóðurinn stefndi í óefni. 

Ennfremur telur félagið að verulega óeðlilegt útstreymi hafi verið síðustu fjóra daga í starfsrækslu sjóðsins og ljóst að innherjaupplýsingar hafi haft áhrif sem juku enn á tap annarra.

Grundvöllur málshöfðunarinnar eru, að því er fram kemur í tilkynnignu AFLs, gögn sem AFL Starfsgreinafélag hefur fengið afhent frá Landsbankanum í kjölfar málshöfðunar félagsins á hendur bankanum til að fá afhentar upplýsingar um samsetningu eigna sjóðsins vikurnar fyrir hrun. Þær upplýsingar fengust afhentar fyrir skömmu.

Samþykkt stjórnarinnar frá því fyrr í kvöld er svohljóðandi:

„Stjórn AFLs Starfsgreinafélags felur framkvæmdastjóra félagsins í samráði við lögmenn AFLs að undirbúa og hefja málsókn á hendur þeim sjóðsstjórum Landsvaka sem önnuðust um sjóði félagsins og upplýsingagjöf til AFLs.
 
Ennfremur samþykkir stjórn AFLs að fela lögmönnum félagsins að gæta hagsmuna félagsins gagnvart uppgjöri Landsbankans þar sem svo virðist sem reglur Landsvaka um áhættudreifingu hafi verið brotnar.

Stjórn AFLs Starfsgreinafélags samþykkir að fela  lögmanni AFLs, að ganga frá sátt við Landsbanka Íslands / Landsvaka vegna málshöfðunar AFLs varðandi upplýsingar um meðferð peningamarkaðssjóða Landsvaka.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert