Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var harðorður í garð Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra á Alþingi fyrir stundu og sakaði hann um hneysklanlega framkomu í garð Tryggva Þórs Herbertssonar.
Steingrímur var að svara fyrirspurn frá Tryggva Þór um Icesave-málið þegar Tryggvi Þór kallaði úr salnum: „þið eigið ekki að lyppast niður.“ Svaraði Steingrímur þá: „Já, þú ættir nú að þekkja það Tryggvi. Þú ert nú hár í loftinu.“
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, varaforseti Alþingis, svaraði athugasemd Birgis við fundarstjórn hennar með því að biðja þingmenn um að gæta hófs í málflutningi sínum.
Birgir gerði einnig athugasemd við að stjórnvöld hefðu í dag skrifað undir nýtt Icesave-samkomulag og það bryti í bága við lög, sem sett voru um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldindinganna frá því í ágústlok.
Ragnheiður sagði að samkomulagið hefði verið undirritað með fyrirvara um samþykki Alþingis. Til standi að frumvarp um málið komi til kasta Alþingis þar sem það fái þinglega meðferð.