400 milljónir í erlendum gjaldeyri á dag

Erlendir ferðamenn á tjaldstæðinu í Laugardal sl. sumar.
Erlendir ferðamenn á tjaldstæðinu í Laugardal sl. sumar. mbl.is/Kristinn

Árið 2009 er fyrir fjöldamörg fyrirtæki í ferðaþjónustu eitt besta rekstrarár í langan tíma og má gera ráð fyrir að erlendir ferðamenn komi með u.þ.b. 150 milljarða króna í erlendum gjaldeyri inn í landið, en það gera u.þ.b. 400 milljónir á dag að meðaltali. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar.

Fram kemur að einn meginþáttur kreppunnar sé lítil sem engin eftirspurn í þjóðfélaginu. Kaupmáttur Íslendinga hafi minnkað stórlega sem leiði til minnkandi veltu í verslun og þjónustu með tilheyrandi gjaldþrotum. Það sé því nauðsynlegt að fá erlenda ferðamenn til að auka viðskipti hér á landi.

Leiðin út úr kreppunni sé m.a. að örva ferðaþjónustuna, leggja í meiri landkynningu til að tryggja áframhaldandi auknar gjaldeyristekjur og fleiri störf um land allt.  Það þurfi meiri fjárfestingu í markaðssetninguna til að tryggja að ríkið fái auknar tekjur í framtíðinni en helstu samkeppnisþjóðir séu um þessar mundir að setja mikið fé í markaðssetningu. 

Svíar hafi t.d. sett tvo milljarða aukalega til markaðsmála og ríkissjóður greiði helminginn. Þannig séu flestar þjóðir að vinna þessa dagana til að draga úr áhrifum kreppunnar.

Þá segir að íslensk ferðaþjónusta hafi aldrei verið mikilvægari og ekki megi láta sitt eftir liggja.  Aukin viðskipti séu betri leið til tekjuaukningar en auknar skattaálögur.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert