„Ef að líkum lætur er þessu ekki lokið,“ segir Haraldur Briem smitsjúkdómalæknir, spurður hvort flensan geti leitt til fleiri dauðsfalla.
Átján ára fjölfötluð stúlka lést af völdum svínaflensunnar á Barnaspítala Hringsins í gær. Talið er að langvinnur lungnasjúkómur sé meginorsök andláts hennar.
Bóluefnið sem kom til landsins í fyrri viku þykir skila góðri svörun. Bólusetningu heilbrigðisstarfsfólks er að ljúka og nú er komið að lögreglu- og slökkviliðsmönnum, björgunarsveitum, þingmönnum, ráðherrum og æðstu embættismönnum.