Undirbúningi fyrir sameiningu sýslumannsembætta frestað

Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði þar sem sýslumannsembættið er m.a. til húsa.
Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði þar sem sýslumannsembættið er m.a. til húsa. mynd/bb.is

„Sýslumannafélagið fékk í gær tilkynningu frá ráðherra dómsmála um að ráðuneytið hefði, að svo stöddu frestað þeirri vinnu sem átti að búa að baki væntanlegri sameiningu embætta,“ segir Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði við vefinn bb.is.

„Og það kom ekki fram í þessum pósti hvort og þá hvenær sú vinna hæfist að nýju. Alþingismenn hljóta að taka afstöðu til þess við umræður um fjárlagafrumvarpið hvort embættum verði fækkað. En eins og sakir standa erum við með óbreyttan fjölda embætta og ljóst að engar breytingar verða á því á þessu fjárhagsári.“

Kristín segir liggja fyrir að sýslumannsembættið á Ísafirði muni ná fram þeirri hagræðingarkröfu sem ráðuneytið gerir. Hún er ekki viss um hvort koma þurfi til uppsagna en segir stefnt að því að halda sama starfsmannafjölda hjá embættinu og veita sömu þjónustu. Ljóst sé hins vegar að hagræðingin muni auðvitað þýða skert kjör hjá einhverjum starfsmanna.

Kristínu þykir fólk hafa farið dálítið fram úr sér í umræðu um fyrirhugaða sameiningu, því ekkert hafi verið byrjað að ræða hvar þjónustuútibú hvers embættis yrðu, né hversu margir starfsmenn ættu að vinna þar. Nefnd sem skoða hafi átt hvernig hagkvæmast væri að vinna að sameiningu hafi ekki einu sinni verið tekin til starfa.

Dómsmálaráðherra féllst á tillögur starfshóps þess efnis að sameina lögregluumdæmi svo þau verði sex að tölu frá næstu áramótum. Jafnframt kynnti ráðherra sýslumönnum hugmynd um fækkun umdæma úr 24 í sjö, en útibú verða þó víðsvegar um landið. Miðað var við að breytingarnar tækju gildi um áramótin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert