Hluti af erlendum kröfuhöfum Kaupþings er ósáttur við vinnubrögð skilanefndar bankans. Vegna þess telja þeir að skilanefnd Kaupþings hafi ekki umboð þeirra til að taka endanlega afstöðu til tilboðs um að eignast hlut í nýja Kaupþingi.
Í yfirlýsingu 21 alþjóðlegra banka á fundi kröfuhafa í gær sagði, að kröfuhafarnir hefðu ekki fengið fullnægjandi upplýsingar sem gerðu þeim kleift að taka afstöðu til kosta sem væru í boði. Jafnframt var uppgjör milli nýja og gamla bankans gagnrýnt.
Nánar er fjallað um þetta mál í Morgublaðinu í dag.